Áramótabrennur í Garðabæ
Uppfært 31. desember 2018: Í ár verða 2 áramótabrennur í Garðabæ, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi.
-
Áramótabrenna
Uppfært 31. desember 2018:
Í ár verða 2 áramótabrennur í Garðabæ, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi.
Kveikt verður í brennunni við Sjávargrund kl. 21 á gamlárskvöld 31. desember. Knattspyrnudeild Stjörnunnar sér um brennuna en Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um flugeldasýningu.
Sjávargrund á Google Maps - korti (ATH slóð á kort sýnir hvar gatan Sjávargrund er en brennan sjálf er staðsett vestan við nær sjónum við Strandstíginn)
Leyfi fékkst fyrir áramótabrennu á Álftanesi þegar íbúar sóttust eftir því að halda þar áramótabrennu á sama stað og undanfarin ár, þ.e. á ströndinni norðan við Gesthús, aðkoma frá Bakkavegi. Kveikt verður í brennunni á Álftanesi kl. 20:30 á gamlárskvöld. Brennan er í umsjón íbúa á Álftanesi. Upplýsingar um brennuna má sjá á fésbókarsíðu íbúa á Álftanesi.
Þrettándabrenna á Álftanesi
Á Álftanesi verður þrettándabrennan sunnudaginn 6. janúar kl. 17:30 nærri ströndinni norðan við Gesthús. Aðkoma er frá Bakkavegi. Brennan er í umsjón Skátafélagsins Svana á Álftanesi.
Kort á Google Maps sem sýnir Bakkaveg.