26. apr. 2021

Ásgarðslaug lokuð-heitavatnslaust í hluta Garðabæjar

Ásgarðslaug í Garðabæ verður lokuð frá kl 08:30 þriðjudaginn 27. apríl. Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í hluta Garðabæjar þann sama dag frá kl. 09:00-16:00.

  • Ásgarðslaug
    Ásgarðslaug

Ásgarðslaug í Garðabæ verður lokuð frá kl 08:30 þriðjudaginn 27. apríl, og stendur lokunin til kvölds. Lokunin kemur til vegna vinnu hjá Veitum varðandi tengingar og verður lokað fyrir heita vatnið.

Vegna viðgerðarinnar verður heitavatnslaust í hluta Garðabæjar þann sama dag frá kl. 09:00-16:00. Sjá nánar á korti.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.