19. des. 2025

Auglýst eftir umsóknum í þróunarsjóð grunnskóla

Garðabær auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla í Garðabæ.

Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við skóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu- og menningarsvið í samstarfi við skóla geta sótt um styrk í sjóðinn.

Til úthlutunar árið 2026 eru 28 milljónir.

Áhersluþættir þróunarsjóðs grunnskóla 2026:

  • Læsi, bæta orðaforða íslenskunnar, yndislestur og bókmenntir

  • Stafrænar lausnir, miðlalæsi, gervigreind, siðferði og gagnrýnin hugsun

  • Framsæknir kennsluhættir, námsmat, nýsköpun, raungreinar og fjármálalæsi

  • Bekkjarstjórnun; jákvæður agi og skipulag kennslustunda

  • Vellíðan; skólaforðun, skjátími, samkennd, að tilheyra jafningjahóp og samvinna við forráðafólk

Við úthlutun er m.a. horft til samvinnu við nemendur við útfærslu verkefna, einnig samstarfs innan skóla og/eða á milli skólastiga eða samvinnu við háskóla- og vísindasamfélagið.

Einnig er hægt að sækja um styrki til verkefna sem styðja við skólanámskrá og sérstöðu hvers skóla.

Ef sótt er um framhaldsstyrk verkefnis þarf skýrsla um framvindu og stöðu verkefnis að fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar um áherslur sjóðsins má finna á heimasíðu þróunarsjóðs leik- og grunnskóla Garðabæjar.

Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. mars og verður þeim svarað fyrir 31. mars 2026.

Sótt er um í gegnum þjónustugátt Garðabæjar.