24. feb. 2026

Auglýst er eftir umsóknum í þróunarsjóð leikskóla í Garðabæ

Fræðslu- og menningarsvið auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar.

Fræðslu- og menningarsvið auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi leikskóla í Garðabæ.

Einstaka leikskólakennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við leikskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu- og menningarsvið í samstarfi við leikskóla geta sótt um styrk í þróunarsjóð.

Til úthlutunar fyrir árið 2026 eru 9.000.000 kr.

Áhersluþættir Þróunarsjóðs leikskóla veturinn 2026-2027 eru:

  • Leikskólastarf með yngstu börnunum
  • Samvinna á milli skólastiga
  • Lýðræði í leikskólastarfi
  • Inngilding í leikskólastarfi

Við hvetjum alla áhugasama að senda inn umsókn þó verkefnið falli ekki undir áherslur
þróunarsjóðs þessa árs. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. apríl og verður þeim svarað fyrir 30. apríl.

Frekari upplýsingar veitir Hanna H Leifsdóttir leikskólafulltrúi. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Garðabæjar.