Bærinn í blóma
Garðyrkjudeild Garðabæjar hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga við að koma sumarblómum á sinn stað í bænum.
-
Garðatorg sett í sumarbúning.
Garðyrkjudeild Garðabæjar hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga við að koma sumarblómum á sinn stað í bænum. Þetta er heljarinnar verkefni en í heildina gróðursetur garðyrkjudeildin um 12.500 sumarblóm víða um bæinn. Kapp er lagt á að gróðursetja meirihlutann fyrir 17. júní.
Sumarblómin komu í hús garðyrkjudeildarinnar í lok maí og þá var fyrsta verkefni að útbúa blómakörfurnar sem hanga á staurum á Garðatorgi. Stóru blómakörfurnar eru 66 talsins og í þær fara um 1.650 blóm.
Garðatorg er nú komið í sumarbúning en á torginu eru gróðursett um 4.500 sumarblóm sem eru ýmist sett í ker, beð, potta eða blómakörfur.
Bleikar stjúpur og litrík fiðrildablóm
Undirbúningurinn hófst um miðjan september í fyrra, þá þurfti að skipuleggja hvaða plöntutegundir og litir yrðu fyrir valinu hverju sinni.
Jóhanna Kristín Jóhannsdóttir, garðyrkjufræðingur, segir blómavalið í ár vera svipað og í fyrra: „Nema núna erum við með bleikar stjúpur í stað gulra. Einnig verða í blómakörfunum fiðrildablóm sem eru allskonar á litinn. Þannig að enginn blómakarfa er eins á litinn. Einnig ætlum við að prófa að vera með lavander í kerjunum.“
Til viðbótar við að koma sumarblómunum á sinn stað þá bíða garðyrkjudeildinni fjölmörg verkefni. „Það þarf að dreifa áburði á allar leikskólalóðir, manir, trjábeð og opin svæði. Undirbúa matjurtagarða og skólagarða bæjarins fyrir starfsemi sumarsins og undirbúa öll sumarblómabeðin, stinga þau upp og arfahreinsa. Yfir sumarið eru helstu verkefni sumarstarfsfólksins að halda gróðurbeðum hreinum, undirbúa og gróðursetja sumarblóm, útbúa blómakörfur, götuker og gróðurbeð, sanda beð, kantskera, þökuleggja og halda bænum snyrtilegum,“ segir Jóhanna.
Hún segir verkefnin vera fjölbreytt. „Það er samvinnuverkefni margra aðila að sjá til þess að bæjarfélagið líti vel út. Verkefnin eru fjölbreytt og þá er gott samstarf á milli garðyrkjudeildar, áhaldahúss, umhverfishópa og vinnuskólans nauðsynlegt.“