30. jan. 2026

Benedikt Sigurðsson er Garðbæingurinn okkar 2025

Benedikt Sigurðsson prestur í Vídalínskirkju var útnefndur Garðbæingurinn okkar 2025 við hátíðlega athöfn.

  • Benedikt Sigurðsson er Garðbæingurinn okkar 2025
    Benedikt Sigurðsson prestur í Vídalínskirkju var útnefndur Garðbæingurinn okkar 2025 við hátíðlega athöfn. Við sama tilefni hlutu fleiri Garðbæingar viðurkenningar fyrir sitt framlag til bæjarins.

Benedikt Sigurðsson, prestur í Vídalínskirkju, er Garðbæingurinn okkar 2025.

Garðabær óskaði eftir tilnefningum frá bæjarbúum og bárust rúmlega 160 fjölbreyttar tilnefningar. Tilnefningarnar voru svo bornar undir dómnefn en hana skipuðu þau Helena Jónasdóttir, Björgvin Júníusson og Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, Sigga Ózk.

Dómnefnd útnefndi Benedikt sem Garðbæing ársins 2025 og veittu einnig fjórar aðrar viðurkenningar til einstaklinga sem hafa sett svip sinn á bæjarbraginn.

Hér má lesa brot úr rökstuðningi dómnefndar:

Benedikt flutti í Garðabæ fyrir rúmum fimm árum og honum hefur svo sannarlega tekist að stimpla sig inn í bæjarlífið síðan þá. Nú hafa sko margir Garðbæingar kynnst því að Benedikt gefur mikið af sér og er alltaf boðinn og búinn að aðstoða.

Á aðfangadag í fyrra tók Benedikt upp á því að hlaupa með vini sínum, Hermanni Þráins, um bæinn og banka upp á hjá íbúum og syngja eitt vers úr jólasálmi. Þetta vakti mikla lukku og athygli. Framtak þetta lýsir Benedikt vel: hans markmið er ávallt að breiða út gleði og kærleika.

Þá er einnig vert að minnast á það að Benedikt hélt góðgerðartónleika á 50 ára afmæli sínu í fyrra, allur ágóði sem safnaðist þar rann til Arnarins sem er minningar- og styrktarsjóður sem býður upp á samverur fyrir börn og unglinga sem hafa misst náinn ástvin. Þetta er Benedikt í hnotskurn.

Benedikt hefur verið mjög virkur í bæjarlífinu síðan hann flutti í Garðabæ og við getum verið stolt af því að nú kalli Benedikt sig Garðbæing.

IE2_7050

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar og dómnefnd, ásamt Benedikt.

Heiðruð fyrir framlag sitt til Garðabæjar

Við sama tilefni voru fjórar viðurkenningar veittar til aðila sem hafa sett svip sinn á bæjarbraginn með einum eða öðrum hætti.

Systurnar Ragnheiður Dísa, Hrafnhildur Magney og Þóranna Gunnarsdætur. Í rökstuðningi dómnefndar og tilnefningum segir meðal annars:

Þær systur Ragnheiður Dísa, Hrafnhildur Magney og Þóranna Gunnarsdætur hafa staðið sig með eindæmum vel með leikfélagið Draumar. Þar halda þær úti flottum og metnaðarfullum námskeiðum fyrir skapandi krakka. Námskeiðin hafa notið mikilla vinsælda og skal engan undra enda smita þær frá sér einstakri gleði og orku. Systurnar hafa sérstakt lag á að staðsetja hvar hæfileikar barnanna liggja og ýta undir þá.

Ragnheiður, Hrafnhildur og Þóranna hafa stutt fjöldann allan af skapandi börnum við að stíga sín fyrstu skref í dansi söng og leiklist og hvatt þau til dáða. Þeim hefur tekist að skapa einstaka umgjörð þar sem börn fá að blómstra.

Saman mynda þær kjarnateymi sem svo margir Garðbæingar hafa svo sannarlega notið góðs af. 

IE2_7011

Elín Birna Guðmundsdóttir, íþróttakennari, hlaut viðurkenningu fyrir sitt framlag. Umsöng dómnefndar:

Elín Birna Guðmundsdóttir, oftast kölluð Birna, er drífandi, öflug og flott í sínu hlutverki. Hún hefur hvatt Garðbæinga á öllum aldri áfram í heilsurækt og stuðlað að bættri líðan bæjarbúa, bæði líkamlegri og andlegri. Í einni tilnefningu segir : „Hún hefur bæði kennt mér og mömmu minni leikfimi og líkamsrækt og börnunum mínum að synda í skólasundi.“ Já, þeir eru orðnir allmargir Garðbæingarnir sem hafa stundað heilsurækt af einhverju tagi undir handleiðslu Birnu.

Birna starfaði sem íþróttakennari í Flataskóla, hefur staðið fyrir sumarnámskeiðum í sundi fyrir börn, kennt meðgöngusund, ungbarnasund, skriðsund og sundleikfimi. Hún sat einnig í kvennahlaupsnefnd til margra ára. Hér er bara stiklað á stóru því Birna hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur þegar kemur að þjálfun og heilsurækt.

Henni er lýst sem tryggri, ljúfri og nærgætinni. Á sama tíma er hún hvetjandi og öflug. Alltaf leggur hún mikinn metnað í þau verkefni sem hún er með á borðinu hverju sinni.

Það má með sanni segja að Birna sé til mikillar fyrirmyndar og við heiðrum hana fyrir sitt dýrmæta framlag til Garðabæjar. 

IE2_7000

Stefán Arinbjarnarson hlaut tilnefningu fyrir sitt framlag, m.a. til íþróttastarfssins á Álftanesi. Í umsögn um Stefán segir:

Stefán er mikil fyrirmynd og hefur verið mjög virkur í íþrótta- og félagsstarfi í Garðabæ síðan árið 1997. Hann hefur þjálfað hinar ýmsu íþróttagreinar fyrir Ungmennafélag Álftaness í yfir 20 ár, þar á meðal körfu og fótbolta og hefur staðið sem með mikilli prýði í þeim verkefnum.

Stefán var einn af stofnendum meistaraflokks karla í körfubolta árið 2000 og hefur unnið ötullega að framgangi liðsins til dagsins í dag, t.d. með undirbúningi og framkvæmd leikja, verið vallarþulur og hjálpað til við fjáraflanir.

Það er óhætt að segja að Stefán sé virkur og með eindæmum öflugur í því sem hann tekur sér fyrir hendur.

Stefán var íþrótta- og tómstundafulltrúi Álftaness árin 2000 – 2010 og var einnig forvarnarfulltrúi sveitarfélagsins. Hann hefur setið í ýmsum stjórnum og ráðum deilda innan Ungmennafélags Álftaness í gegnum árin. Auk þess hélt hann utan um áramótabrennuna á Álftanesi í fjölda ára og hefur tekið að sér ýmis sjálfboðaliðastörf fyrir UMFÁ; t.d. skipulagningu móta, fjáröflun, dómgæslu, skipulagningu sumarnámskeiða og viðburða.

Þau sem til hans þekkja vita hann Stefán er ávallt boðinn og búinn þegar kallið kemur og hefur gert alveg einstaklega mikið fyrir íþróttastarfið á Álftanesi. 

IE2_7019

Óttarr og Marcin Makuch á Dæinn í Urriðaholti hlutu viðurkenningu og sérstaka hvatningu:

Óttarr og Marcin Makuch reka Dæinn í Urriðaholti. Margir vilja meira að Dæinn sé er orðið að eins konar félagsmiðstöð í Urriðaholti því þar sé alltaf líf og fjör og skemmtileg stemning. Alltaf er eitthvað um að vera hjá þeim – einhverjir áhugaverðir viðburðir og uppákomur sem laða fólk að.

Marcin og Ottarr Makuch eru þekktir fyrir að taka einstaklega vel á móti fólki, sýna mikinn metnað í sínum rekstri og hafa fagmennsku í fyrirrúmi. Og eins og einn segir: „Þeir eru svo opnir og skemmtilegir, gera frábæran mat, láta sig hverfið og málefnin varða og eru mikil stofnæð í lífinu hér í urriðaholti.“ Það er ekki amalegt að fá svona umsögn um sig.

Við veitum þeim Óttarri og Marcin sérstök hvatningarverðlaun og þökkum þeim fyrir þeirra einstaka framlag. Þeir hafa svo sannarlega sett svip sinn á hverfið og Garðabæ.

IE2_7026

IE2_7036

Bjarni Lárus Hall og Sigga Ózk tóku lagið

IE2_6976IE2_6957IE2_6952IE2_7114IE2_7093IE2_6958

Hugmyndin

Með því að útnefna „Garðbæinginn okkar“ erum við að þakka fyrir það sem vel er gert, þakka einstaklingi fyrir sitt framlag, þeim sem eru til fyrirmyndar á einhvern hátt og minna okkur á að við getum öll haft áhrif. Til greina koma Garðbæingar en einnig fólk sem starfar eða dvelur í bænum til lengri eða skemmri tíma og hefur jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt.