10. feb. 2021

Betri Garðabær – hugmyndasöfnun hefst 17. febrúar

Lýðræðisverkefnið Betri Garðabær hefst á ný 17. febrúar nk. með hugmyndasöfnun þar sem íbúar geta sent inn hugmyndir um smærri framkvæmdir í sínu nærumhverfi. 

  • Betri Garðabær - sendu inn þína hugmynd!
    Ertu með góða hugmynd? Hvað vantar í hverfið þitt? Hugmyndasöfnun í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæ stendur yfir til og með 4. febrúar 2024.

Lýðræðisverkefnið Betri Garðabær hefst á ný 17. febrúar nk. með hugmyndasöfnun þar sem íbúar geta sent inn hugmyndir um smærri framkvæmdir í sínu nærumhverfi. Hugmyndasöfnunin stendur fram til 8. mars og eftir að hugmyndasöfnun lýkur fer matshópur skipaður starfsmönnum bæjarins yfir innsendar hugmyndir og kostnaðarmetur. Ákveðinn fjöldi hugmynda fer í rafræna kosningu síðar í vor, eða um mánaðarmótin maí/júní, þar sem íbúar í Garðabæ fá að kjósa um hugmyndirnar. Markmið lýðræðisverkefnisins Betri Garðabæjar er að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í Garðabæ og verja fé til framkvæmda sem byggir á þátttökufjárlagagerð, þar sem íbúar forgangsraða sjálfir fjármagni í framkvæmdir.

Hugmyndasöfnun og úrvinnsla hugmynda

Hugmyndasöfnunarvefur opnar 17. febrúar nk. og hugmyndasöfnun stendur yfir til 8. mars nk. Þar er hugmyndum safnað rafrænt þar sem íbúar og aðrir geta lagt fram hugmyndir, rætt hugmyndir og líkað við þær eða hafnað. Á hugmyndavefnum er hægt að setja inn texta, ljósmyndir, stutt myndbönd og staðsetja hugmyndir á korti.

Hugmyndirnar íbúa geta verið nýframkvæmdir sem m.a. geta eflt hreyfi- og leikmöguleika og haft jákvæð áhrif á nærumhverfið m.a. til útivistar og samveru, bætta lýðheilsu og aðstöðu til leikja- og skemmtunar.

Eftir að hugmyndasöfnun lýkur fer matshópur skipaður starfsmönnum bæjarins yfir innsendar hugmyndir út frá skilyrðum verkefnisins og leggur fram ákveðinn fjölda hugmynda á kjörseðil þar sem hugmyndirnar eru kostnaðarmetnar. Horft verður til þess að þær hugmyndir sem fara á kjörseðilinn verði dreift landfræðilega jafnt um sveitarfélagið.

100 milljónir til úthlutunar í rafrænum kosningum

Þegar búið er að vinna úr hugmyndunum og kostnaðarmeta fá íbúar í Garðabæ tækifæri til að kjósa um hugmyndirnar og úthluta allt að 100 milljónum króna í verkefni sem þeir vilja sjá framkvæmd í sveitarfélaginu næstu tvö árin. Rafræn kosning er fyrirhuguð frá 26. maí- 7. júní nk.

Kosningin er rafræn og þátttaka er opin öllum þeim íbúum sem hafa skráð lögheimili í Garðabæ þegar kosning fer fram og verða 15 ára og eldri á kosningaárinu.
Undirbúningur framkvæmda fer af stað strax að loknum kosningum. Verkefni sem þarfnast minni undirbúnings fara í framkvæmd sumarið 2021 en stærri verkefnum verður lokið að hausti 2022.

Upplýsingar um Betri Garðabæ


Betri Garðabær er nú haldið í annað sinn en það var fyrst haldið vorið 2019 þar sem söfnuðust hátt í 300 hugmyndir frá íbúum um margvísleg verkefni. Alls voru 13 verkefni sem hlutu brautargengi í kosningunum árið 2019 af 27 verkefnum sem voru á rafrænum kjörseðli. Búið er að ljúka flestum verkefnunum sem hlutu kosningu þá en nokkur stærri verkefni verða kláruð á þessu ári. Verkefni sem hlutu kosningu þá voru m.a. uppsetning á aparólu í nágrenni Hofsstaðaskóla, sundfatavindur í Álftaneslaug, skjólveggur í Ásgarðslaug, útisturta við Sjáland, fjölgun strætóskýla, fjölgun áningarstaða, uppsetning á ærslabelg á Álftanesi og gerð útivistarstígs í Heiðmörk.

Öll gögn um Betri Garðabæ sem fer senn af stað á ný verða aðgengileg hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is og allar nánari upplýsingar verða veittar í þjónustuveri Garðabæjar eða á netfanginu gardabaer@gardabaer.is þegar verkefnið hefst með hugmyndasöfnun núna í febrúar.