25. nóv. 2021

Bjarg og Búseti byggja í Urriðaholti í Garðabæ

Föstudaginn 19. nóvember sl. var tekin skóflustunga fyrir fjölbýlishús Bjargs og Búseta við Maríugötu í Urriðaholti í Garðabæ. Um er að ræða tvö fjölbýlishús þar sem Bjarg er með 22 leiguíbúðir og Búseti 20 búseturéttaríbúðir. 

  • Á myndinni, séð frá vinstri; Árni Stefán Jónsson stjórnarformaður Bjargs, Jón Ögmundsson stjórnarformaður Búseta, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs, Almar Guðmundsson bæjarfulltrúi og formaður fjölskylduráðs Garðabæjar, Þóroddur Arnarson forstjóri ÍAV, Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar, Áslaug Hulda Jónsdóttir bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Garðabæjar og Bjarni Þórólfsson framkvæmdastjóri Búseta. Mynd fengin af vef Bjargs.

Föstudaginn 19. nóvember sl. var tekin skóflustunga fyrir fjölbýlishús Bjargs og Búseta við Maríugötu í Urriðaholti í Garðabæ. Um er að ræða tvö fjölbýlishús þar sem Bjarg er með 22 leiguíbúðir og Búseti 20 búseturéttaríbúðir. Garðabær leggur til stofnframlag vegna bygginga íbúða Bjargs.
Bjarg og Búseti hafa átt samstarf um hönnun og framkvæmdir verkefnisins og hefur verið samið við ÍAV um heildarverkið.  Sjá einnig frétt á vef Bjargs.

Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkað aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd.

Fallegur regnbogi í Urriðaholti