10. nóv. 2025

Bókmenntahátíðin Iceland Noir teygir anga sína í Garðabæinn

Bókmenntahátíðin sem hressir upp á skammdegið, Iceland Noir, teygir anga í Garðabæinn miðvikudaginn 12. nóvember. Viðburðurinn hefst klukkan 20:00 í Sveinatungu, Garðatorgi 7, aðgangur ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Að þessu sinni koma fram rithöfundarnir Chris Whitaker, Stefan Ahnem auk leikarans Will Tudor

Garðabær í samvinnu við bókmenntahátíðina Iceland Noir býður í áhugavert höfundaspjall og notalega samverustund á Garðatorgi. Að þessu sinni koma fram rithöfundarnir Chris Whitaker, Stefan Ahnem auk leikarans Will Tudor. Viðburðurinn hefst klukkan 20:00 þann 12.nóvember, í Sveinatungu á Garðatorgi 7, aðgangur ókeypis og öll velkomin.

Chris Whitaker er breskur höfundur bókarinnar All The Colours of The Dark sem rataði á metsölulista New York Times og Sunday Times. Hann hefur einnig skrifað bækurnar We Begin at the End, Tall Oaks og All the Wicked Girls sem hafa einnig notið fádæma vinsælda. Skáldsögur Chris hafa verið þýddar á þrjátíu og eitt tungumál og hafa meðal annars unnið Gullrýtinginn, bresku glæpasagnaverðlaunin og fjölmörg önnur glæpasagnaverðlaun um allan heim. All the Colours of The Dark er nú í framleiðslu hjá Universal Pictures og We Begin at The End í framleiðslu hjá A24.

Stefan Ahnhem er einn af vinsælustu norrænu glæpasagna höfundur samtímans. Auk þess að skrifa bækur hefur Stefan starfað sem farsæll handritshöfundur í meira en tvo áratugi. Frá því að frumraun hans á glæpasagnasviðinu, Victim Without a Face, kom út árið 2014 hefur hann einbeitt sér að skrifum sem einkennast af spennu í bland við hefbundna glæpasagnafrásögn. Segja má að hann nýti sér allt það besta úr norrænni glæpasagnahefð í bland við sjónræna og spennuþrungna eiginleika handritsskrifa. Stefan hefur skrifað sjö glæpasögur sem allar hafa orðið metsölubækur á alþjóðavísu og meðal annars hlotið fjölmörg verðlaun. Stefan hefur verið lýst sem höfundi sem er svartari en Steig Larsson og enn manneskjulegri en Henning Mankell.

Will Tudor er breskur leikari sem fæddist inn í læknafjölskyldu en kaus að helga sig leiklist í stað þess að í fótspor foreldra sinna og læra læknisfræði. Hann nam leiklist við Royal Central School of Speech and Drama og útskrifaðist þaðan árið 2011. Leikferill hans er til marks um að sú ákvörðun hafi verið árrétt en Will hefur meðal annars leikið hlutverk í Game of Thrones, Humans, Industry og Shadowhunters, og nú nýlega í Wolf Hall: The Mirror and the Light og Moonflower Murders á BBC.Viðburðurinn á 

Facebook: Iceland Noir í Garðabæ - Off Venue í Sveinatungu | Facebook

Viðburðurinn fer fram í Sveinatungu.