4. nóv. 2021

Börnin mætt á Mánahvol

Fyrstu börnin eru mætt á ungbarnaleikskólann Mánahvol á Vífilsstöðum. Leikskólinn er staðsettur við hliðina á leikskólanum Sunnuhvoli sem er þar fyrir.

  • Börn á Mánahvoli.
    Börn á Mánahvoli.

Fyrstu börnin eru mætt á ungbarnaleikskólann Mánahvol á Vífilsstöðum. Leikskólinn er staðsettur við hliðina á leikskólanum Sunnuhvoli sem er þar fyrir. Fyrstu vikurnar fór starfsemi skólans fram í húsnæði leikskólanna Krakkakots og Holtakots á Álftanesi en nú eru börnin komin yfir á Vífilsstaðatún.

Til að byrja með verða fjórar deildir opnaðar á Mánahvoli en í lok árs rísa fjórar deildir til viðbótar ásamt starfsmannaaðstöðu. Gert er ráð fyrir að leikskólinn geti verið með pláss fyrir allt að 112 börn þegar allar 8 deildir verða komnar til starfa.

Kristín Hemmert Sigurðardóttir er leikskólastjóri á Mánahvoli og Sigríður Brynjarsdóttir er aðstoðarleikskólastjóri. Þær segja fyrstu dagana hafa gengið vel. „Fyrstu dagarnir á Mánahvoli hafa gengið mjög vel. Börn og starfsfólk er mjög ánægt með þessa fínu aðstöðu hérna á Vífilsstaðatúni. Skólinn er mjög skemmtilegur og skólaandinn er hlýlegur. Megi skólastarfið blómstra á Mánahvoli.“

Börn á Mánahvoli.

Fataklefinn á Mánahvoli.

Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Eiríkur Björn Björgvinsson sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Halldóra Pétursdóttir leikskólafulltrúi fóru í heimsókn á Mánahvol í vikunni.

Eiríkur Björgvinsson fræðslustjóri, Halldóra Pétursdóttir leikskóalfulltrúi, Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Kristín Sigurðardóttir leikskólastjóri og Sigríður Brynjarsdóttir aðstoðarleikskólastjóri.