7. sep. 2020

Dale Carnegie námskeið fyrir 13-15 ára

Garðabær er í samstarfi við Dale Carnegie um námskeið í haust fyrir ungt fólk á aldrinum 13-15 ára (8.-10. bekk) búsett í Garðabæ. Dale Carnegie námskeiðið fer fram í félagsmiðstöðinni Garðalundi

  • Innritun í grunnskóla

Garðabær er í samstarfi við Dale Carnegie um námskeið í haust fyrir ungt fólk á aldrinum 13-15 ára (8.-10. bekk) búsett í Garðabæ. Dale Carnegie námskeiðið fer fram í félagsmiðstöðinni Garðalundi í húsnæði Garðaskóla og er einu sinni í viku á þriðjudögum frá 17-20:30 í 8 skipti.  Forráðamenn barna 13-15 ára í Garðabæ hafa fengið sendan kynningarpóst um námskeiðið í gegnum skólana/félagsmiðstöðina í skólanum.

Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 6. október nk. og enn er hægt að skrá sig á námskeiðið. Námskeiðið er niðurgreitt fyrir þátttakendur vegna samstarfssamningar Garðabæjar og Dale Carnegie.  Kostnaður fyrir þátttakendur í Garðabæ er 41 000 kr (fullt verð er 109 000 kr). Námskeiðið er krefjandi og skemmtilegt, ýtir undir frumkvæði, eflir leiðtogahæfileika og eykur sjálfstraust. Á námskeiðinu fá þátttakendur þjálfun í að tala fyrir framan hóp og verða betri í tjáningu og læra margar aðferðir sem hjálpa til við að sýna frumkvæði, hvatningu og jákvæðni.

Kynningarfundir um námskeiðið verða á netinu í september fyrir forráðamenn og börn og skráning á kynningarfundina og námskeiðið sjálft má sjá hér á vef Dale Carnegie.