18. jún. 2025

Eingöngu konur á næsta bæjarstjórnarfundi

Í tilefni af 110 ára afmæli kosningaréttar kvenna til Alþingis verður fundur bæjarstjórnar Garðabæjar 19. júní eingöngu skipaður kvenbæjarfulltrúum.

  • Fundir bæjarstjórnar eru haldnir í Sveinatungu, Garðatorgi 7.

Næsti fundur bæjarstjórnar sem haldinn verður 19. júní verður með breyttu sniði í tilefni 110 ára afmælis kosningaréttar kvenna til Alþingis. Fundurinn verður eingöngu skipaður kvenbæjarfulltrúum og eru konur í Garðabæ hvattar sérstaklega til að mæta.

Fundurinn verður öllum opin líkt og aðrir fundir bæjarstjórnar. Bæjarstjórnarfundir eru í beinu streymi á vef Garðabæjar.