20. sep. 2023

Enduropnun Minjagarðsins á Hofsstöðum

Nýuppfærð sýning sem margmiðlunarfyrirtækið Gagarín hannaði hefur nú verið opnuð í Minjagarðinum á Hofsstöðum. Margmiðlunarsjónaukar gefa gestum færi á að skyggnast inn í lífið á landnámsöld á nýstárlegan hátt 

  • Minjagarðurinn á Hofsstöðum enduropnaður
    Minjagarðurinn á Hofsstöðum enduropnaður

Nýuppfærð sýning sem margmiðlunarfyrirtækið Gagarín hannaði hefur nú verið opnuð í Minjagarðinum á Hofsstöðum við Kirkjulund í Garðabæ. Margmiðlunarsjónaukar gefa gestum færi á að skyggnast inn í lífið á landnámsöld á nýstárlegan hátt en fólk við dagleg störf birtist ljóslifandi í kíkjum sem eru nýjung í miðlun á Íslandi. Mánudaginn 20. september sl. var gestum og gangandi boðið að vera viðstödd þegar sýningin var opnuð í Minjagarðinum.  

Minjagarðurinn á Hofsstöðum enduropnaður

Stór landnámsskáli frá lokum 9. aldar

Fornleifarannsóknir við Hofsstaði hófust árið 1994 en árið 1985 komu í ljós minjar sem bentu til búsetu á þessum stað á 10. eða 11. öld. Bæjaryfirvöld í Garðabæ ákváðu að byggja minjagarð og varðveita þannig merkar fornminjar og gera umhverfið fræðandi, aðlaðandi og aðgengilegt fyrir gesti. Niðurstöður fornleifarannsóknanna varpa mikilvægu ljósi á líf og starf fólks við upphaf byggðar á tímum landnáms og stórhug fyrstu íbúa Garðabæjar en landnámsskálinn er að öllum líkindum frá lokum 9. aldar og með stærri skálum sem fundist hafa á Íslandi. Efni á upplýsingaskiltum og margmiðlunarsjónaukum er byggt á fornleifarannsókninni.

Landnámsskálinn á Hofsstöðum var um 170 fermetrar að stærð og þar hafa líklega búið á milli 20–30 manns.

Fróðleikur á vefsíðunni afturtilhofsstada.is

Minjagarðurinn á Hofsstöðum og margmiðlunarsýningin Aftur til Hofsstaða á Garðatorgi 7 eru tilvalin vettvangur fyrir fjölskyldur og hvers kyns hópa til að fræðast og eiga saman góða stund. Minjagarðurinn er opinn allan sólarhringinn en sýningin Aftur til Hofsstaða frá kl. 9 -17 alla daga.
Þá er vert að benda á fróðleik sem vefsíðan www.afturtilhofsstada.is býður upp á en þar má finna fræðsluefni um Hofsstaði.

Nánariupplýsingar um Hofsstaði má sjá hér á vef Garðabæjar.

Minjagarðurinn á Hofsstöðum

Minjagarðurinn á Hofsstöðum