14. nóv. 2018

Erasmus gestir í Hofsstaðaskóla

Vikuna 15. -19. október voru góðir gestir í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Gestirnir komu frá sjö evrópuþjóðum þ.e. Belgíu, Ítalíu. Bretlandi, Búlgaríu, Frakklandi (Guadalupe), Tyrklandi og Svíþjóð en um var að ræða skólastjórnendur og kennara úr leik- og grunnskólum, alls 17 manns. 

  • Heimsókn í Hofsstaðaskóla
    Heimsókn í Hofsstaðaskóla

Vikuna 15. -19. október voru góðir gestir í Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Gestirnir komu frá sjö evrópuþjóðum þ.e. Belgíu, Ítalíu. Bretlandi, Búlgaríu, Frakklandi (Guadalupe), Tyrklandi og Svíþjóð en um var að ræða skólastjórnendur og kennara úr leik- og grunnskólum, alls 17 manns. 

Gestirnir áttu það sameiginlegt að vera þátttakendur í Erasmusverkefni ásamt Hofsstaðskóla. Verkefnið ber yfirskriftina L'école de demain pour tous commence aujourd'hui eða Tomorrow‘s school for all starts today og er markmiðið að miðla þekkingu á milli landa um hvernig nýta má upplýsingatækni í skólastarfi á fjölbreyttan hátt til að bæta nám og kennslu ásamt því að kynnast menningu landanna. 

Heimsóknin tókst í alla staði mjög vel og voru gestirnir ánægðir með það sem þeir upplifðu af landi og þjóð. Þeir sýndu skólanum mikinn áhuga og voru afar ánægðir með dvölina hér. Tekið var formlega á móti gestunum með því að ganga um og kynna þeim skólann og sáu ensku- og frönskumælandi nemendur skólans um þá kynningu. Gestirnir heimsóttu fjölmargar kennslustofur og tóku þátt í kennslustundum og nokkrum vinnustofum þar sem unnið var með ýmis verkfæri og tækjabúnað í upplýsingatækni. 

Hofsstaðaskóli í heild sinni vakti mikla hrifningu gestanna og höfðu þeir á orði að hér færi fram mikið og gott faglegt starf og að allur aðbúnaður væri til fyrirmyndar bæði fyrir nemendur og starfsfólk.

IMG_5520IMG_5495

IMG_5587