19. nóv. 2025

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins stofnað

Farsældarráð höfuðborgarsvæðins var formlega stofnað föstudaginn 14. nóvember. Með stofnun ráðsins er stigið mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki sveitarfélaga og ríkisstofnana um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

  • Mynd tekin við undirritun stofnsamninga í Garðaholti, Garðabæ, talið frá vinstri: Hansína Þóra Gunnarsdóttir fulltrúi íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, Hanna Borg Jónsdóttir verkefnisstjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri Kjósarhrepps, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Helga Sigríður Þórsdóttir rektor MS og fulltrúi framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu og María Káradóttir staðgengill lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. /ljósm. Hallur Karlsson

Sá ánægjulegi áfangi náðist föstudaginn 14. nóvember að Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað. Undirskriftarviðburðurinn fór fram á aðalfundi SSH í Garðaholti í Garðabæ.

Farsældarráðið er vettvangur sameiginlegrar stefnumótunar og samráðs í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Stofnun ráðsins festir í sessi markvisst samtal og aukna samvinnu milli þjónustuaðila ríkis og sveitarfélaga. Markmið ráðsins er að efla og samræma þjónustu við börn á höfuðborgarsvæðinu með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun.

Þjónustuveitendur eiga aðild að ráðinu

Aðilar að ráðinu eru sveitarfélögin sex, Garðabær, Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær og Seltjarnarnes. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í þjónustu við börn og bera ábyrgð á skólaþjónustu, leik- og frístundastarfi, félagsþjónustu og barnavernd. Auk sveitarfélaganna eiga aðild að ráðinu Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólarnir á höfuðborgarsvæðinu og íþróttahreyfingin á höfuðborgarsvæðinu.

Ráðið mun forgangsraða aðgerðum og móta fjögurra ára aðgerðaáætlun sem allir aðilar samþykkja. Aðgerðirnar byggja á samvinnu þjónustuveitenda og tengjast öllum helstu þáttum farsældar: menntun, heilsu og vellíðan, félagslegri stöðu og lífsgæðum, öryggi og vernd, þátttöku og félagslegum tengslum. Sérstök áhersla verður lögð á snemmtæka íhlutun og samfélagslegar forvarnir.

Vinna ráðsins byggir á gögnum og samráði

Ráðið mun nýta fyrirliggjandi gögn og m.a. byggja á víðtæku samráði sem þegar hefur átt sér stað. Þar má nefna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, sem verða notaðar sem áttaviti í forgangsröðun og árangursmælingum. Þá nýtast ráðinu vel niðurstöður úr vinnustofum sem lögreglan hefur staðið fyrir í sveitarfélögunum þar sem starfsfólk lögreglu, heilsugæslu, sveitarfélaga, framhaldsskóla og íþróttafélaga hefur unnið saman að lausnum fyrir börn í viðkvæmri stöðu.

Einnig verður horft til aðgerðaáætlunar svæðisstöðvar íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu, sem unnin var í samstarfi við öll íþróttafélög á svæðinu og miðar að því að auka íþróttaþátttöku barna og ungmenna. Þá mun ráðið nýta greiningar frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) varðandi forvarnir, geðrækt og úrræði í grunnskólum. Samvinna innleiðingastjóra farsældar á höfuðborgarsvæðinu verður jafnframt mikilvæg í vinnunni, en þau hafa greint helstu áskoranir sem tengjast samþættingu þjónustu við börn og ungmenni.

Farsældarráð í öllum landshlutum

Farsældarráðin á landinu byggja á samningi mennta- og barnamálaráðuneytisins við sjö landshlutasamtök sveitarfélaga sem undirritaður var í október 2024. Með samningnum skuldbundu öll sveitarfélög landsins sig til að hefja innleiðingu 5. greinar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmiðið er að börn og foreldrar fái þjónustu við hæfi, án hindrana og stofnun ráðanna markar mikilvægan áfanga í þeirri innleiðingu.