4. des. 2020

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2021 samþykkt

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 3. desember sl. var fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 samþykkt. Samhliða áætlun næsta árs var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir árin 2022, 2023 og 2024.

  • Íbúafundur um fjárhagsáætlun
    Þriðjudaginn 6. desember kl. 17:15 verður opinn kynningarfundur um fjárhagsáætlun. Íbúar eru velkomnir á fundinn í Sveinatungu á Garðatorgi 7 en einnig er fundurinn í beinni útsendingu hér á vef Garðabæjar.

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 3. desember sl. var fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 samþykkt. Samhliða áætlun næsta árs var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir árin 2022, 2023 og 2024. Á milli umræðna um fjárhagsáætlun í bæjarstjórn Garðabæjar voru gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu.

Fjárhagsstaða Garðabæjar er sterk, skuldir eru hóflegar og langt undir viðmiðunarmörkum samkvæmt 2. tl. 2. mgr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga en þar er mælt fyrir um að skuldir megi ekki vera hærri en sem nemur 150% af reglulegum tekjum. Skuldaviðmið verður 88,3% árið 2021.
Samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðureiknings verði neikvæð um 35 mkr. Veltufé frá rekstri er áætlað að verði 1.134 m.kr. hjá A sjóði og 1.690 m.kr. í samstæðureikningi. Framlegð er áætluð 9,7% en er 11,5% samkvæmt áætlun 2020.
Áfram er gert ráð fyrir miklum framkvæmdum en þær eru áætlaðar 3.584 millj. árið 2021 en voru áætlaðar 3.028 millj. árið 2020.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021-2024 síðari umræða – samþykkt áætlun.
Greinargerð með fjárhagsáætlun.

Óbreytt útsvar

Gert er ráð fyrir óbreyttu álagningarhlutfalli útsvars 13,7 %, sem er það lægsta sem þekkist meðal stærri sveitarfélaga landsins. Í forsendum fyrir fjárhagsáætlun Garðabæjar er gert ráð fyrir að þjónusta við bæjarbúa verði áfram eins og best verður á kosið, að ekki verði dregið úr grunnþjónustu vegna samdráttar tekna og að álögur á íbúa verði haldið eins lágum og kostur er. Jafnframt verði gætt ítrasta aðhalds í rekstri bæjarins.

Framkvæmdir á árinu 2021

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Garðabæ á undanförnum árum og áfram er gert ráð fyrir miklum framkvæmdum á árinu 2021. Stærsta framkvæmdin er áframhaldandi uppbygging á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri fyrir um 2.000 mkr. Stefnt er að því að byggja tvo nýja búsetukjarna fyrir fatlað fólk á næstu tveimur árum og á næsta ári er áætlað að verja um 200 mkr í þá uppbyggingu. Samkvæmt framkvæmdaáætlun er gert ráð fyrir að bæta aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf eldri borgara með nýrri aðstöðu á miðsvæði Álftaness auk þess sem gert er ráð fyrir að möguleikar verði skoðaðir á stækkun félagsaðstöðu eldri borgara í Jónshúsi. Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdir við nýjan leikskóla í Urriðaholti hefjist á árinu 2021 og að á árinu verði undirbúningur hafinn að næsta áfanga Urriðaholtsskóla. Til gatnagerðar, hljóðvistar, umferðarmála er áætlað að verja um 1.001 mkr. og til samveitna um 300 mkr. Einnig verður ráðist í áframhaldandi viðhald á íþrótta- og skólamannvirkjum utandyra sem innan.