29. jan. 2026

Flott dagskrá í Garðabæ á Safnanótt

Safnanótt fer fram 6. febrúar og það verður boðið upp á flotta dagskrá í Garðabæ. Ókeypis er á alla viðburðina.

Garðbæingar og aðrir góðir gestir eru velkomnir að njóta dagskrár á Hönnunarsafni Íslands og Bókasafni Garðabæjar á Safnanótt sem fer fram föstudaginn 6. febrúar. Ókeypis er á viðburði á báðum stöðum og öll velkomin.

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7

  • 19.00 - 22.00 Sýning og spádómsspil:
    Sýningin Tapað/fundið: gersemar og smotterí. ,,Bókamerki” sem gestir bókasafnsins hafa gleymt í skiluðum bókum til sýnis. Forvitnilegt og skemmtilegt!
    Freistaðu gæfunnar. Spádómsspil bókasafnsins sjá inn í framtíð og fortíð.
  • 20.00-22.00 Tónlistaratriði:
  • Strengjakvartett
    Nemendur á framhaldsstigi í Tónlistarskóla Garðabæjar sem mynda strengjakvartett leika verk eftir valinkunn tónskáld.
  • Álftnesku tónskáldin
    Þórey María E. Kolbeins, klarinettleikari, flytur tónverk eftir Gunnstein Ólafsson, John Anthony Speight, Karólínu Eiríksdóttur og Tryggva M. Baldvinsson. Dagskráin er krydduð með nokkrum skemmtilegum sögum af tónskáldunum - sögur sem Þórey María sankaði að sér úr viðtölum sem hún tók við tónskáldin sumarið 2024. Helga Sigríður E. Kolbeins leikur með á píanó.
  • Legally Blonde
    Atriði úr söngleiknum með leikfélaginu Verðandi úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.

Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi 1

Viðburður á Facebook