26. mar. 2019

Garðabær felur Hrafnistu rekstur dagdvalar á Ísafold

Á fundi bæjarráðs Garðabæjar, í dag 26. mars 2019, var samþykkt að fela Sjómannadagsráði fyrir hönd Hrafnistu rekstur dagdvalar fyrir eldri borgara í þjónustumiðstöð hjúkrunarheimilisins Ísafoldar í Garðabæ.

  • Undirritun samnings um rekstur dagdvalar í Ísafold
    Undirritun samnings um rekstur dagdvalar í Ísafold. Hálfdan Henrysson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, handsala samninginn.

Á fundi bæjarráðs Garðabæjar, í dag 26. mars 2019, var samþykkt að fela Sjómannadagsráði fyrir hönd Hrafnistu rekstur dagdvalar fyrir eldri borgara í þjónustumiðstöð hjúkrunarheimilisins Ísafoldar í Garðabæ. Hrafnista hefur rekið hjúkrunarheimilið Ísafold í Garðabæ frá 1. febrúar 2017.
Hrafnista tekur formlega við rekstri dagdvalarinnar þann 1. apríl n.k.

Í dagdvöl Ísafoldar eru tuttugu rými, sextán almenn og fjögur fyrir einstaklinga með heilabilun. Markmiðið er að fjölga rýmum í áföngum í allt að þrjátíu á næstu misserum. Dagdvölin verður rekin samhliða starfsemi hjúkrunarheimilisins eins og verið hefur. Samningurinn gildir til 31. desember 2028.

Engar breytingar verða á starfsemi dagdvalarinnar við aðilaskiptin en stefnt er að því að með samlegðaráhrifum með rekstri hjúkrunarheimilisins skapist tækifæri til aukinnar hagræðingar og bættrar þjónustu.