Garðabær hagræðir í rekstri fyrir alls 283 milljónir króna á árinu 2025
Garðabær hefur ákveðið að ráðast í aukna hagræðingu upp á 83 milljónir króna á árinu 2025 til að mæta kostnaðarauka vegna nýrra kjarasamninga.
-
Mikilvægt er að tryggja jafnvægi í rekstri og aðlaga útgjöld að breyttum forsendum, án þess að draga úr grunnþjónustu til íbúa
Tillögurnar voru kynntar Bæjarráði á fundi þriðjudaginn 20. maí af bæjarstjóra, Almari Guðmundssyni. Þegar var gert ráð fyrir 200 milljóna króna hagræðingu sem hluta af fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025. Alls nema hagræðingaraðgerðir því 283 milljónum króna árið 2025.
„Mikilvægt er að tryggja jafnvægi í rekstri og aðlaga útgjöld að breyttum forsendum, án þess að draga úr grunnþjónustu til íbúa,“ segir Almar.
Megnið af þeirri viðbótarfjárhæð sem um ræðir, eða 73 milljónir króna, felst í hagræðingu á launakostnaði. Til að ná þeim markmiðum verður dregið úr fjölda sumarstarfa á bæjarskrifstofunni og engar nýráðningar í sumarstörf bæjarins verða gerðar eftir 23. maí.
Þá verður farið í átak til að draga úr kostnaði vegna skammtímaveikinda og gripið til almennrar hagræðingar í launakjörum, t.d. með frystingu launa bæjarstjóra og sviðsstjóra.
Að auki felst í tillögunni að dregið verður úr aðkeyptri þjónustu, um sem nemur 10 milljónum króna.
Hagræðingaraðgerðir þessar eru hluti af viðbrögðum við kostnaðarauka sem nemur ríflega 533 milljónum króna. Áður hafa verið kynntar mótvægisaðgerðir sem fela það í sér að nýta varasjóð Garðabæjar til að mæta hluta kostnaðaraukans, ásamt því að gert er ráð fyrir hærra framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og hærra útsvari vegna launahækkana kennara.
Þá hefur framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins verið endurskoðuð og dregið verður úr umfangi framkvæmda.