Glæsilegt stjörnugerði í nágrenni við Búrfellsgjá tekið í notkun
Stjörnu-Sævar verður með okkur þegar nýtt og glæsilegt stjörnugerði í Heiðmörk í Garðabæ verður tekið formlega í notkun.
Nýtt og glæsilegt stjörnugerði í nágrenni við Búrfellsgjá í Garðabæ verður tekið formlega í notkun 14. október klukkan 19:30.
Við hvetjum stjörnuáhugafólk á öllum aldri að koma og taka þátt þegar stjörnugerðið verður kynnt en sjálfur Stjörnu-Sævar verður með okkur. Hann mun fræða viðstadda um stjörnugerðið og töfrana sem leynast á himninum ásamt því að leyfa okkur að kíkja í sjónauka. Hver veit nema við komum auga á loftsteinahrap, dansandi norðurljós og stöku gervitungl á fleygiferð umhverfis plánetuna okkar? Á næturhimninum er nefnilega ótalmargt að sjá.
Klæðum okkur eftir veðri og þau sem eiga höfuðljós og sjónauka eru hvött til að taka með sér.
Boðið verður upp á heitt kakó og notalega stund. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Stjörnugerðið í Heiðmörk er verkefni sem hlaut brautargengi í kosningum lýðræðisverkefnisins Betri Garðabæjar. Við Búrfell eru nefnilega kjöraðstæður til að skoða stjörnuhimininn og norðurljósin – fjarri upplýstum veruleika þéttbýlisins.
Viðburðinn á Facebook má finna hérna.
Stjörnugerðið er staðsett við bílastæði við Heiðmerkurveg sem tengist útivistarstíg að Búrfelli og Búrfellsgjá.