11. feb. 2026

Halda 14 tónleika á Degi tónlistarskólanna

Tónlistarskóli Garðabæjar býður upp á metnaðarfulla dagskrá á Degi tónlistarskólanna sem haldinn verður laugardaginn 14. febrúar. Boðið verður upp á 14 tónleikar í skólanum í tilefni dagsins.

Tónlistarskóli Garðabæjar býður upp á metnaðarfulla dagskrá á Degi tónlistarskólanna sem haldinn verður laugardaginn 14. febrúar. Boðið verður upp á 14 tónleikar í skólanum í tilefni dagsins.

Markmiðið með Degi tónlistarskólanna er að vekja athygli á fjölbreyttri og öflugri starfsemi tónlistarskólanna í landinu.

Samspil er meginþema á Degi tónlistarskólanna í Tónlistarskóla Garðabæjar og bera tónleikar dagsins þess glöggt merki. Haldnir verða 14 stuttir tónleikar í tónleikasal og blásarasal skólans þar sem fram koma hljómsveitir, samspilshópar af ýmsum stærðum og gerðum, söngvarar og einleikarar. Tónlistin er að vanda fjölbreytt og skemmtileg.

Tónleikar fyrir hádegi verða klukkan 10:30, 11:00 og 11:30. Eftir hádegi eru tónleikar klukkan 13:00, 13:30, 14:00 og 14:30.

„Við hvetjum alla Garðbæinga til að heimsækja skólann á Degi tónlistarskólanna og kynna sér öfluga starfsemi hans,“ segir Laufey Ólafsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar.

Aðgangur á tónleikana er ókeypis og öll eru velkomin.