7. nóv. 2023

Haustsýning Grósku

      Frjálst flæði og fjölbreytt myndlist

Á Haustsýningu Grósku er frjálst flæði í fjölbreyttri myndlist og verður vafalaust mikið fjör á opnunarkvöldinu í Gróskusalnum við Garðatorg 1 fimmtudaginn 9. nóvember kl. 19:30-21. Meðal verka á sýningunni eru skúlptúrar og höggmyndir, skálar og vasar úr tré, vatnslitamyndir, málverk í olíu og akrýl og myndir unnar með ýmis konar blandaðri tækni svo fátt eitt sé nefnt.

Sýnendur eru í Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ, en með þeim sýnir líka fjölhæfur gestalistamaður frá Grundarfirði, Lúðvík Karlsson Liston. Hann hefur unnið með grjót frá barnsaldri en notar auk þess málma og timbur og á veturna snýr hann sér stundum að maleríi. Úr efnunum mótast andlit, mynstur og form, tilhöggvin, samsett og endurmótuð eftir höfði listamannsins. Liston segist vera sjálfmenntaður og kallar sig alþýðulistamann.

Í Grósku er líka fjölskrúðugur hópur fagmenntaðra og sjálfmenntaðra myndlistarmanna en ein af hugsjónum félagsins er að allir fái að blómstra og njóta sín við listsköpun. Í fjölda ára hefur starfsemi Grósku skapað mikilvægan vettvang fyrir skapandi samneyti myndlistarmanna og eflt myndlistina og menningarlíf Garðabæjar. Gróska stendur að öllu jöfnu fyrir nokkrum myndlistarsýningum á ári, auk námskeiða og annarra viðburða.

Myndlistarmenn sem búa eða vinna í Garðabæ eru hvattir til að sækja um inngöngu í Grósku gegnum fésbókarsíðu félagsins: https://www.facebook.com/groska210/ eða með því að senda póst á groskamyndlist@gmail.com.

Fólk er hvatt til að gera sér glaðan dag, göfga andann og njóta listar á Haustsýningu Grósku. Myndlistarmennirnir verða á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir, Garðbæingar jafnt sem aðrir listunnendur, og þau sem ekki komast á opnunina þurfa ekki að örvænta því sýningin er opin áfram helgarnar 11.-12., 18.-19. og 25.-26. nóvember. kl. 13:30-17:30.