10. jún. 2022

Hávaxnar undraverur heimsóttu Garðabæ

Listahátíð heimsótti Garðabæ með atriðinu ,,Rauðglóandi götuleikhús" laugardaginn 4. júní sl. Um var að ræða hluta af opnunaratriði Listahátíðar í Reykjavík

  • Rauðglóandi götuleikhús - opnunaratriði listahátíðar
    Rauðglóandi götuleikhús - opnunaratriði listahátíðar

Listahátíð heimsótti Garðabæ með atriðinu ,,Rauðglóandi götuleikhús" laugardaginn 4. júní sl.  Um var að ræða hluta af opnunaratriði Listahátíðar í Reykjavík sem einnig fór fram í miðbæ Reykjavíkur og í Reykjanesbæ.  Það viðraði vel fyrir götuleikhúsið þennan dag, sólskin og logn, og hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar mættu í Garðabæinn og gengu frá Litlatúni yfir á Garðatorg.  Fjöldi fólks fylgdi þeim á leiðinni sem og voru fjölmargir mættir á Garðatorgið til að fylgjast með atriði götuleikhússins.  Undraverurnar vöktu sannarlega mikla lukku og áhorfendur á öllum aldri kunnu vel að meta þennan listviðburð á heimsmælikvarða sem boðið var upp á í Garðabænum í samstarfi Garðabæjar og Listahátíðar í Reykjavík. 

Götuleikhúsið samanstendur af hollenska leikhópnum Close-Act Theatre sem hefur starfað í hartnær þrjátíu ár og vakið athygli víða um lönd fyrir leiftrandi götuleikhússýningar sem hrífa áhorfendur með sér inn í veruleika þar sem allt getur gerst.

Hér á fésbókarsíðu Garðabæjar má sjá fleiri myndir frá heimsókn götuleikhússins í Garðabæ. 

Rauðglóandi götuleikhús - opnunaratriði listahátíðar

Rauðglóandi götuleikhús - opnunaratriði listahátíðar

Rauðglóandi götuleikhús