Heitavatnslaust á Álftanesi að hluta
Vegna tengingar á nýrri lögn verður heitavatnslaust í Breiðumýri, Asparholti og Birkiholti á Álftanesi mán. 23. september kl. 09:00-15:00. Álftaneslaug verður lokuð á meðan.
-
Veitur
Vegna tengingar á nýrri lögn verður heitavatnslaust í Breiðumýri, Asparholti og Birkiholti á Álftanesi mán. 23. september kl. 09:00-15:00 samkvæmt tilkynningu frá Veitum. Sjá nánari upplýsingar á vef Veitna.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.
Vegna þessa verður lokað í Álftaneslaug í dag frá kl. 09 og frameftir degi og ekki hægt að fara í sturtur á staðnum.