11. maí 2020

Hjólað í vinnuna

Íbúar Garðabæjar og vinnustaðir í Garðabæ eru hvattir til að taka þátt í verkefninu ,,Hjólað í vinnuna" sem hófst 6. maí sl. og stendur til 26. maí nk.

  • Merkingar á göngu- og hjólastíg við Arnarnesvog
    Merkingar á göngu- og hjólastíg við Arnarnesvog

Íbúar Garðabæjar og vinnustaðir í Garðabæ eru hvattir til að taka þátt í verkefninu ,,Hjólað í vinnuna" sem hófst 6. maí sl. og stendur til 26. maí nk.

Opnað hefur verið fyrir skráningar og hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 26. maí. Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi. Þrátt fyrir sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu núna er nauðsynlegt að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. 

Mikilvægt er fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Umhverfisvænn ferðamáti og góð hreyfing

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna.
Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.

Á vef Hjólað í vinnuna eru einfaldar og góðar leiðbeiningar um hvernig hægt er að skrá sig til leiks. 

Kortavefur Garðabæjar

Á kortavef Garðabæjar er hægt að sjá kort yfir göngu- og hjólastíga í bænum, með því að smella á Samgöngur og haka við mismunandi gerðir stíga.  Á kortavefnum er einnig hægt að velja sína eigin leið og mæla vegalengdir.  Auk þess sem hægt er að skoða daglegar tölur úr hjóla- og gönguteljurum sem eru staðsettir á nokkrum stöðum í bæjarlandinu.

20_Heilsueflandi-S_logo_Gardabaer_1589197448332