16. nóv. 2018

Hofsstaðaskóli tekur þátt í alþjóðlegri áskorun

Vikuna 12.-16. nóvember taka nemendur í 4. -7. bekkjum Hofsstaðaskóla í Garðabæ þátt í Bebras áskoruninni. 

  • Bebras er alþjóðleg áskorun.
    Bebras er alþjóðleg áskorun.

Vikuna 12.-16. nóvember taka nemendur í 4. -7. bekkjum Hofsstaðaskóla í Garðabæ þátt í Bebras áskoruninni. 

Áskorunin er fyrir nemendur á aldrinum 8 – 18 ára. Nemendur leysa krefjandi og skemmtileg verkefni sem byggja á rökhugsun sem notuð er við forritun (e. International Challenge on Informatics and Computational Thinking). 

Bebras áskorunin er alþjóðleg áskorun sem hefur stækkað mikið á síðustu árum, fyrsta áskorunin var í Litháen árið 2004 en árið 2012 voru þátttakendur yfir 500.000 og er Bebras áskorunin því ein fjölmennasta áskorun sem notuð er til kennslu í upplýsingatækni. Hofsstaðaskóli hefur verið með í áskoruninni frá upphafi, eða árið 2015.

Hér má nálgast frekari upplýsingar um Bebras áskorunina.