30. okt. 2020

Höldum hrekkjavöku eingöngu heima öryggisins vegna!

Að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 hvetjum við foreldra og forráðamenn að halda upp á hrekkjavökuna með börnum sínum með öðru sniði í ár. 

  • Hrekkjavaka á tímum COVID
    Hrekkjavaka á tímum COVID

Laugardaginn 31. október er hrekkjavaka sem hefur sífellt notið meiri vinsælda hér á landi og víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús með „grikk eða gott".

Að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 hvetjum við foreldra og forráðamenn að halda upp á hrekkjavökuna með börnum sínum með öðru sniði í ár. Veiran getur svo auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletirnir margir þegar gengið er hús úr húsi til að fá sælgæti. Áhættan við að fá smit er afar mikil eins og staðan er núna.

Við erum öll almannavarnir, höldum áfram að vinna að því saman að fækka smitum og komast á betri stað en við erum í dag.

Við getum gert þetta saman og samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin!

Á vef Heimilis og skóla má sjá ýmsar skemmtilegar hugmyndir um hvað hægt er að gera á hrekkjavökunni í ár.