4. maí 2021

Hönnunarsamkeppni um nýjan leikskóla í Urriðaholti

Nýverið rann út frestur til að skila inn tillögum í framkvæmdasamkeppni um tillögu að 6 deilda leikskóla við Holtsveg í Urriðaholti. Samkeppnin er haldin af Garðabæ í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og undirbúningur að hönnunarsamkeppninni hófst síðasta haust.

  • Dómnefnd í hönnunarsamkeppni um leikskóla í Urriðaholti
    Frá vinstri: Áslaug Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður dómnefndarinnar, Hrefna Gunnarsdóttir, deildarstjóri í Urriðaholtsskóla, Sigurður Einarsson arkitekt, Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir, formaður leikskólanefndar Garðabæjar, Freyr Frostason arkitekt og Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar og ritari dómnefndarinnar.

Nýverið rann út frestur til að skila inn tillögum í framkvæmdasamkeppni um tillögu að 6 deilda leikskóla við Holtsveg í Urriðaholti. Samkeppnin er haldin af Garðabæ í samstarfi við Arkitektafélag Íslands og undirbúningur að hönnunarsamkeppninni hófst síðasta haust og í byrjun árs var auglýst eftir tillögum. Dómnefnd fer nú yfir tillögurnar sem bárust og gert er ráð fyrir að niðurstaða dómnefndar liggi fyrir 4. júní nk. Í dómnefndinni sitja fyrir hönd Garðabæjar Áslaug Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Garðabæjar sem er jafnframt formaður dómnefndarinnar, Hrefna Gunnarsdóttir, deildarstjóri í Urriðaholtsskóla og Kristjana Fjóla Sigursteinsdóttir, formaður leikskólanefndar Garðabæjar. Freyr Frostason arkitekt og Sigurður Einarsson arkitekt sitja í dómnefndinni fyrir hönd Arkitektafélag Íslands. Ritari dómnefndarinnar er Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæjar, og trúnaðarmaður er Helga Guðjónsdóttir hjá Arkitektafélagi Íslands.

Urriðaholt – umhverfisvænt hverfi í vexti

Urriðaholt er eitt nýjasta hverfi Garðabæjar þar sem íbúðabyggð er í örum vexti. Hátt í 2500 manns búa nú í hverfinu og gert ráð fyrir að allt að 4500 íbúum í Urriðaholti þegar það verður fullbyggt. Ljóst er að hefja þarf uppbyggingu nýs leikskóla í hverfinu í takt við íbúafjölgun en fyrir í hverfinu er Urriðaholtsskóli, samrekinn leik- og grunnskóli.

Í deiliskipulagi Urriðaholts er gert ráð fyrir leikskóla á lóð við Holtsveg neðan götu sem opnast út að grænu svæði sem liggur frá efri hluta holtsins niður í átt að Kauptúni. Áætlað er að nýi leikskólinn í Urriðaholti verði 6 deilda leikskóli fyrir allt að 120 börn frá 1 árs aldri. Byggingarframkvæmdir við leikskólann hefjast á þessu ári og gert ráð fyrir að leikskólinn taki til starfa á árinu 2022.

Séð yfir Urriðaholt. Ljósmynd: Þráinn Hauksson, LandslagÍ uppbyggingu Urriðaholts hefur verið mikil áhersla á að byggðin sé umhverfisvæn og í góðum tengslum við náttúruna í kring. Stefnt er að því að nýi leikskólinn í Urriðaholti verði umhverfisvottuð bygging. Urriðaholt var fyrsta hverfið á Íslandi til að fá vistvottun skipulags samkvæmt vottunarkerfi ,,BREEAM Communities“ sem er ætlað að tryggja lífsgæði og umhverfisvernd með vistvænu skipulagi byggðarinnar. Sjálfbærar ofanvatnslausnir eru í hverfinu sem eru fyrstu sinnar tegundar í íbúabyggð á landinu. Þó að stutt sé í náttúruna úr Urriðaholti liggur hverfið vel við í góðar samgönguæðar þar sem stutt er í Reykjanesbrautina. Síðasta haust hóf Strætó göngu sína í Urriðaholtið með hringleið um hverfið að Vífilsstaðavegi, fram hjá Garðatorgi og að Ásgarði þar sem eru góðar tengingar í aðrar strætóleiðir.