6. jún. 2018

Hreinsunarátaki á garðaúrgangi lokið

Hreinsun á garðaúrgangi er nú lokið og eru íbúar beðnir um að fara með garðaúrgang í endurvinnslustöðvar

  • Vorhreinsun garða 2018

Síðustu vikur hafa verktakar og starfsmenn farið um Garðabæ og hreinsað garðaúrgang sem settur hefur verið við lóðamörk. Nú er hreinsuninni lokið og eru íbúar beðnir um að fara með garðaúrgang í endurvinnslustöðvar.  Hreinsunin tók lengri tíma en áætlað var þar sem mjög mikið magn af garðaúrgangi hafði verið sett til hirðingar í þetta sinn.