Hvað finnst þér um vef Garðabæjar?
Unnið er að því að smíða nýjan vef fyrir Garðabæ og við óskum eftir þínu áliti.
Undirbúningsvinna er nú í fullum gangi fyrir smíði á nýrri heimasíðu fyrir Garðabæ. Þess vegna hefur stutt könnun um viðhorf og notkun fólks á gardabaer.is verið sett í loftið. Við viljum heyra hvað þér finnst.
Könnuninni er ætlað að veita innsýn inn í álit og notkun fólks á núverandi vef og væntingar til nýs vefs. Einnig er spurt úr í aðra vefi bæjarins og samfélagsmiðla.
Við þökkum öllum þeim sem gefa sér tíma til að svara henni en það tekur um 3-5 mínútur.
Könnunin er opin til 4. júlí 2025.