2. sep. 2025

Hvað liggur ykkur á hjarta?

Þrír íbúafundir verða haldnir í Garðabæ í september. Bæjarstjóri Garðabæjar ásamt sviðsstjórum ræða málin og taka við fyrirspurnum frá bæjarbúum.

Kynntu þér málin á árlegum íbúafundum bæjarins og ræddu málin við bæjarstjóra Garðabæjar og sviðsstjóra. Á fundunum fá íbúar tækifæri til að fara yfir það sem þeim liggur á hjarta, taka til máls og bera fram fyrirspurnir.

Fundirnir eru skipulagðir út frá hverfum bæjarins en athygli er vakin á því að hverfaskiptingin er aðeins leiðbeinandi og eru fundirnir opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.

  • Fyrsti fundur verður haldinn í Miðgarði þann 10. september, klukkan 19:30.
  • Annar fundur fer fram í Urriðaholtsskóla þann 17. september, klukkan 19:30.
  • Þriðji fundurinn verður haldinn í Álftanesskóla þann 24. september klukkan 19:30.

Heitt á könnunni og léttar veitingar. Hlökkum til samtalsins.