Hvar er snyrtilegasta lóðin í bænum?
Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega umhverfisviðurkenningar og leitar nú til bæjarbúa eftir ábendingum.
-
Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega umhverfisviðurkenningar og leitar nú til bæjarbúa eftir ábendingum.
Umhverfisnefnd Garðabæjar óskar nú eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2025. Einnig er leitað ábendinga um skemmtileg opin svæði, snyrtilega götu og framlag til umhverfismála.
Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir árlega umhverfisviðurkenningar og leitar nú til bæjarbúa eftir ábendingum um:
- Snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis
- Snyrtilegar lóðir fyrirtækis
- Skemmtileg opin svæði
- Snyrtilega götu
- Framlag til umhverfismála
Við hvetjum bæjarbúa til að senda inn ábendingar, hægt er að skila þeim í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með því að senda tölvupóst á netfangið: gardabaer@gardabaer.is fyrir 16. júlí 2025.