6. mar. 2026

Íbúafundur um stöðu uppbyggingar í Urriðaholti

Garðabær býður íbúum á fund um stöðu uppbyggingar í Urriðaholti og áform um lok hennar.

Haldinn verður íbúafundur um stöðu uppbyggingar í Urriðaholti og áform um lok hennar í Urriðaholtsskóla, miðvikudaginn 11. mars klukkan 20.00.

Á fundinum verður farið yfir stöðu uppbyggingar í hverfinu, undirbúning breytinga fyrir háholtið, bæði torg og aðliggjandi lóð Vinastræti 20-24.

Jafnframt verður farið yfir áform um að gera skógargarðinn aðgengilegri fyrir íbúa og frágang umhverfis gamla bæjarstæði Urriðakotsbæjarins.

Að kynningu lokinni verða fulltrúar Garðabæjar og Urriðaholts ehf. til svara um ofangreint og önnur skipulagsmál í hverfinu.

Öll velkomin!

Viðburður á Facebook