Íbúaþing eldra fólks í Garðabæ fer fram 11. mars
Íbúaþing um málefni eldra fólks í Garðabæ verður haldið 11. mars á veitingahúsinu Sjálandi.
Íbúaþing um málefni eldra fólks í Garðabæ verður haldið 11. mars á veitingahúsinu Sjálandi
Eldra fólk í Garðabæ er hvatt til að skrá sig á þingið og taka virkan þátt í að móta framtíðarsýn og þróun í þeim málefnum sem varða eldra fólk í bænum.
Skráning fer fram dagana 11. febrúar til 1. mars í gegnum Abler. Einnig er hægt að skrá sig í gegnum netfangið jonshus@gardabaer.is.
Aðstandendum og öllum þeim sem hafa áhuga á málefnum eldra fólks er boðið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum eyðublað sem nálgast má hérna. Opið er fyrir innsendingar til 4. mars.
