Íbúaþing eldra fólks í Garðabæ fer fram 11. mars
Íbúaþing um málefni eldra fólks í Garðabæ verður haldið miðvikudaginn 11. mars í Sjálandi. Skráning á þingið gekk vel.
Íbúaþing um málefni eldra fólks í Garðabæ verður haldið 11. mars á veitingahúsinu Sjálandi, frá klukkan 12:00 til 16:00. Þar gefst eldra fólki í Garðabæ tækifæri til að taka virkan þátt í að móta framtíðarsýn og þróun í þeim málefnum sem varða eldra fólk í bænum.
Skráning fór fram dagana 11. febrúar til 4. mars og gekk skráning vel. Aðstandendum og öllum þeim sem hafa áhuga á málefnum eldra fólks var þá boðið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum sérstakt eyðublað sem var opið til 4. mars. Þau svör og athugasemdir sem skiluðu sér þar inn er meðal þess sem verður tekið til umfjöllunar á þinginu.
Nánar verður fjallað um íbúaþing eldra fólks á vef Garðabæjar að því loknu og helstu niðurstöður vinnunnar sem þar fer fram kynntar.
