7. ágú. 2020

Íbúum fjölgar í Garðabæ

Íbúum í Garðabæ fjölgaði um 473 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. og er það næst mesta fjölgun á landsvísu og hlutfallslega mesta fjölgunin á höfuðborgarsvæðinu.  

  • Fjölgun íbúa í Garðabæ frá 1. desember 2019
    Fjölgun íbúa í Garðabæ frá 1. desember 2019

Íbúum í Garðabæ fjölgaði um 473 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. júlí sl. og er það næst mesta fjölgun á landsvísu en í Reykjavík fjölgaði íbúum um 1.503 á sama tímabili skv. tölum frá Þjóðskrá Íslands. Íbúafjöldi í Garðabæ er núna 17.417 (7. ágúst 2020).

Hlutfallslega mest fjölgun í Garðabæ á höfuðborgarsvæðinu

Þegar tölur eru skoðaðar fyrir höfuðborgarsvæðið er hlutfallslega mest fjölgun í Garðabæ í samanburði við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eða um 2,8 % fjölgun. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu í heild fjölgaði um 1,0 % eða 2.382 íbúa.

Í frétt á vef Þjóðskrár er hægt að sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 2019 og 2018. Á vef Þjóðskrár er einnig hægt að sjá Íslandskort, sbr. mynd sem fylgir þessari frétt, þar sem hægt er að sjá breytingar á íbúafjölda eftir sveitarfélögum síðustu 6 mánuði eða frá 1. desember 2019.

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna sex mánuði eða um 11,6% en íbúum þar fjölgaði þó aðeins um 10 íbúa eða úr 86 í 96 íbúa. Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi um 1,4% eða 433 íbúa.