25. feb. 2026

Innritun í grunnskóla í Garðabæ fyrir skólaárið 2026-2027

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2020) og 8. bekk (f. 2013) fer fram dagana 2.- 10. mars. Innritað er í gegnum island.is og í þjónustugátt bæjarins. Forráðafólki og væntanlegum nemendum gefst kostur á að koma í heimsókn í grunnskólana í Garðabæ frá 2. -10. mars.

  • Fræðsludagar kennara í grunnskólum Garðabæjar

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2020) og 8. bekk (f. 2013) fer fram dagana 2.- 10. mars nk. Innritað er í gegnum island.is og í þjónustugátt Garðabæjar. Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla.

Innritun í grunnskóla

Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að forráðafólk tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 10. mars nk.

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2026-2027 er til 1. apríl, sótt er um skólavist utan sveitarfélags á þjónustugátt Garðabæjar eða í gegnum island.is. Athugið að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár.

Skólastjórnendur grunnskóla í Garðabæ geta heimilað nemanda með lögheimili í öðru sveitarfélagi en Garðabæ skólavist í grunnskóla Garðabæjar enda sé nægjanlegt húsrými til staðar, ákvörðunin leiði ekki til viðbótarkostnaðar fyrir Garðabæ og fyrir liggi samningur við hlutaðeigandi sveitarfélag um greiðslu námskostnaðar.

Innritun í frístund

Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á þjónustugátt Garðabæjar. Sama gildir fyrir sérstakt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk.

Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum. Ef umsóknir fyrir næsta skólaár berast fyrir 15. júní fær barnið pláss á umbeðnu frístundaheimili. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru afgreiddar með tilliti til starfsmannahalds hverju sinni.

Kynningar í grunnskólum

Í Garðabæ velur forráðafólk í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt. Forráðafólki og væntanlegum nemendum gefst kostur á að koma í heimsókn í grunnskólana í Garðabæ frá 2. -10. mars. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.

Vinsamlega hafið samband við skrifstofu skólanna og bókið heimsókn sé óskað eftir því eða mætið á opið hús þar sem það á við.

Grunnskólar Garðabæjar

Skólabyrjun haustið 2025

Kynnið ykkur skólastarfið með því að bóka tíma eða mætið á opið hús þar sem það á við.

ALÞJÓÐASKÓLINN

Hafið samband við skrifstofu skólans í síma: 594-3100 eða sendið tölvupóst á netfangið: admin@internationalschool.is | Internationalschool.is.

ÁLFTANESSKÓLI

Hafið samband við skrifstofu skólans í síma: 540 4700 eða sendið tölvupóst á netfangið: alftanesskoli@alftanesskoli.is.

BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR

Hafið samband við Hjallastefnuna í S.555 7710, eða sendið tölvupóst á netfangið: barnaskolinngbr@hjalli.is | bskgbr.hjalli.is.

FLATASKÓLI

Opið hús þriðjudaginn 3. mars, frá klukkan 17:00 til 18:00.

Hafið samband við skrifstofu skólans í síma: S. 513 3500 eða sendið tölvupóst á netfangið: flataskoli@flataskoli.is fyrir nánari upplýsingar.

GARÐASKÓLI

Opið hús og kynning fyrir nemendur og foreldra verður miðvikudaginn 4. mars frá 17:00 – 18:00 annars vegar og hins vegar frá 20:00 – 21:00. Hafið samband við skrifstofu skólans ef óskað er eftir að koma á öðrum tíma í síma 590 2500 eða sendið tölvupóst á netfangið: gardaskoli@gardaskoli.is.

HOFSSTAÐASKÓLI

Hafið samband við skrifstofu skólans í síma: 590 8100 eða sendið tölvupóst á netfangið: hskoli@hofsstadaskoli.is.

SJÁLANDSSKÓLI

Opið hús og kynning verður fimmtudaginn 5. mars kl. 16:00 – 17:00. Hafið samband við skrifstofu skólans ef óskað er eftir að koma á öðrum tíma, í síma: 590 3100 eða sendið tölvupóst á netfangið: sjalandsskoli@sjalandsskoli.is.

URRIÐAHOLTSSKÓLI

Hafið samband við skrifstofu skólans í síma: 591 9500 eða sendið tölvupóst á netfangið: urridaholtsskoli@urridaholtsskoli.is.