6. mar. 2026

Innritun í leikskóla Garðabæjar fer fram 25. og 26. mars

Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir haustið fer fram 25. og 26. mars. Við minnum foreldra á að yfirfara umsóknir og uppfæra eftir þörfum fyrir 23. mars, líkt og áður verður biðlisti frystur í allt að 30 daga til að hægt sé að vinna úr umsóknum.

  • Innritun í leikskóla Garðabæjar fer fram 25. og 26. mars
    Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir haustið fer fram 25. og 26. mars. Við minnum foreldra á að yfirfara umsóknir og uppfæra eftir þörfum fyrir 23. mars, líkt og áður verður biðlisti frystur í allt að 30 daga til að hægt sé að vinna úr umsóknum.

Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir haustið 2026 fer fram 25. og 26. mars. Verið er að úthluta þeim plássum sem losna þegar heill árgangur barna hefur grunnskólagöngu. Stefnt er að því að bjóða öllum börnum sem eru fædd í ágúst 2025 og eldri pláss í þessari innritun.

Við minnum foreldra á að yfirfara umsóknir og uppfæra eftir þörfum fyrir 23. mars, það á líka við um flutningsbeiðnir. Á meðan unnið er að innritun verður ekki hægt að breyta innsendum umsóknum. Reynt verður að mæta óskum foreldra eftir bestu getu.

Innritun í 5 ára deild Sjálandsskóla verður 24. mars.

Leikskólainnritun gengur vel og plássum fjölgarUppfæra þarf beiðnir um flutning fyrir 23. mars, þ.e.a.s. taka út eldri umsóknir og setja inn nýja, eða uppfæra beiðnina skv. óskum.

Athugið að umsóknir sem berast eftir 23. mars virkjast á mánudeginum 27. apríl, þegar búið er að yfirfara fyrirliggjandi umsóknir sem bárust 25. mars eða fyrr.

Vala leikskólakerfi heldur utan um flest sem viðkemur umsókn og leikskóladvöl barnsins. Hér má finna leiðbeiningar fyrir Völu leikskólakerfi.

Við innritun í leikskóla er tekið mið af kennitölu barna, þau elstu fá úthlutað fyrst. Í Garðabæ fer fram innritun í laus leikskólapláss allt árið þó að flest börn komist í aðlögun í leikskóla við upphaf skólaársins, í ágúst. Þegar pláss losnar er það boðið til barns á biðlista í samræmi við innritunarreglur.

Næsta innritunarlota verður í seinni hluta maí.

Innritun í leikskóla Garðabæjar fer fram 2. og 3. apríl

Við minnum foreldra á að yfirfara umsóknir og uppfæra eftir þörfum fyrir 23. mars meðan unnið er að innritun verður ekki hægt að breyta innsendum umsóknum. Vala leikskólakerfi heldur utan um flest sem viðkemur umsókn og leikskóladvöl barnsins.

Praktískar upplýsingar fyrir fjölskyldur:

  • Vala leikskólakerfi heldur utan um flest sem viðkemur umsókn og leikskóladvöl barnsins.

  • Foreldrum er sent bréf þegar barn fær leikskóladvöl. Foreldrar hafa 5 virka daga í umhugsunarfrest, eftir það er barnið tekið af biðlista.

  • Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að barn eigi lögheimili í Garðabæ og sé búsett í bænum. Sjá nánar hér: Innritunarreglur

Störf í leikskólum Garðabæjar

Garðabær vill laða til sín hæft og faglegt starfsfólk. Leikskólakennarar sem hafa áhuga á að kynna sér leikskólastarfið í Garðabæ er bent á síðuna www.starfabaer.is, en fjölmörg fríðindi eru í boði auk þess sem stytting vinnuvikunnar er að fullu komin til framkvæmda.

Í leikskólum Garðabæjar starfar samhentur hópur ólíkra einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn. Starfið fer allt fram í öflugri og líflegri teymisvinnu. Við kappkostum að skapa vinnustað þar sem allar hugmyndir fá að njóta sín og starfsfólk getur haft raunveruleg áhrif. Þannig gefum við fólkinu okkar tækifæri til að nýta krafta sína til að vaxa í starfi, hvar sem styrkleikarnir liggja.