28. feb. 2020

Íslandsmót kvenna í skák haldið í Garðabæ

Íslandsmót kvenna í skák hófst í gær, 27. febrúar í Sveinatungu við Garðatorg 7 í Garðabæ. Átta af tólf stigahæstu skákkonum landsins taka þátt en Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar setti mótið og lék fyrsta leikinn.

  • Íslandsmót kvenna í skák
    Íslandsmót kvenna í skák

Íslandsmót kvenna í skák hófst í gær, 28. febrúar í Sveinatungu við Garðatorg 7 í Garðabæ. Átta af tólf stigahæstu skákkonum landsins taka þátt en Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar setti mótið og lék fyrsta leikinn.

Mótið stendur yfir til 3. mars nk. og teflt verður í tveim flokkum. Annars vegar í landsliðsflokki kvenna. Þar eiga keppnisrétt allar skákkonur með 1600 skákstig eða meira. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Íslandsmeistari kvenna árið 2020. Hins vegar í áskorendaflokki kvenna. Hann er opinn fyrir allar skákkonur sem ekki ná 1600 skákstigum.

Keppendalistinn:
1.WGM Lenka Ptácníková (2099)
2.WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir (2021)
3.Jóhanna Björg Jóhanndóttir (1933)
4.WIM Lisseth Acevedo Mendez (1849)
5.Tinna Kristín Finnbogadóttir (1838)
6.Hrund Hauksdóttir (1804)
7.Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1690)
8.Sigríður Björg Helgadóttir (1682)

Á fyrsta keppnisdegi vann Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1933)  Guðlaugu Þorsteinsdóttur (1994) og Lisseth Acevedo Mendez (1849) lagði Hrund Hauksdóttur (1804) að velli. Öðrum skákum lauk með jafntefli.

Í áskorendaflokki kvenna taka fimm ungar og efnilegar stúlkur þátt. Á fyrsta keppnisdegi unnu Batel Goitom Haile (1559) og Guðrún Fanney Briem (1209) sínar skákir.

Mótið er haldið sameiginlega af Skáksambandi Íslands og Taflfélagi Garðabæjar sem fagnar 40 ára afmæli í ár. 

Íslnadsmót kvenna í skák

Íslnadsmót kvenna í skák