5. jan. 2023

Íþróttafólk Garðabæjar

Tilkynnt verður um val á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar á íþróttahátíð Garðabæjar sem fer fram sunnudaginn 8. janúar 2023 kl. 13 í Miðgarði.

  • Taktu þátt í valinu á íþróttafólki Garðabæjar 2025
    Sex konur og sex karlar hafa verið tilnefnd af ÍTG til íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2025. Hér má lesa umsagnir um þau og þú getur haft áhrif á kjörið.

Tilkynnt verður um val á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar á íþróttahátíð Garðabæjar sem fer fram sunnudaginn 8. janúar 2023 kl. 13 í Miðgarði. 

Þar mæta þeir tíu íþróttamenn sem tilnefndir voru til íþróttafólks Garðabæjar. Á hátíðinni verða veittar viðurkenningar til þeirra sem kepptu með A-landsliði eða U-landsliði í fyrsta skipti á árinu 2022. Einnig fyrir árangur á erlendum vettvangi svo sem á EM, HM eða öðrum sterkum alþjóðlegum mótum á árinu og þá verður lið ársins einnig útnefnt. Þá verða útnefndir þjálfarar ársins og heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum afhentar.