Íþróttafólk Garðabæjar 2025 - Kallað eftir tilnefningum
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar leitar til almennings til að fá sem gleggstar upplýsingar um árangur íþróttafólks í Garðabæ vegna viðurkenninga á Íþróttahátíð bæjarins.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar leitar til almennings til að fá sem gleggstar upplýsingar um árangur íþróttafólks í Garðabæ vegna viðurkenninga á Íþróttahátíð bæjarins.
Viðurkenningar hljóta aðeins þeir sem keppa með félögum í Garðabæ eða stunda íþróttagreinar utan Garðabæjar sem ekki eru í boði innan bæjarfélagsins á því getustigi.
ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL:
1. Íþróttafólk Garðabæjar: Tilnefningar um einstaklinga sem skarað hafa fram úr í sinni íþrótt til að hljóta sæmdarheitið íþróttamaður ársins. Umsögn þarf að fylgja.
2. Landsliðsþátttaka: Óskað er eftir upplýsingum um hverjir ha keppt í fyrsta skipti með
a) A-landsliði eða
b) U-landsliðum
3. Verðlaun á erlendum vettvangi s.s. HM, EM, NM eða sambærilegum mótum hvort heldur er sem einstaklingar, para- eða í liðakeppni. Ábendingar þurfa að hafa borist til Kára Jónssonar íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa Garðabæjar með tölvupósti karijo@gardabaer.is í síðasta lagi 3. desember nk.
