21. des. 2018

Íþróttamenn Garðabæjar 2018 - kosning

Fjórir karlar og fjórar konur eru tilnefnd af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2018. Einn karlmaður og ein kona verða valin, annars vegar sem íþróttakarl og hins vegar íþróttakona Garðabæjar 2018. 

  • Íþróttafólk Garðabæjar 2017
    Íþróttamenn ársins 2017.

Fjórir karlar og fjórar konur eru tilnefnd af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2018. Einn karlmaður og ein kona verða valin, annars vegar sem íþróttakarl og hins vegar íþróttakona Garðabæjar 2018.

Opin vefkosning fer fram á vef Garðabæjar frá 21. desember nk. til 2. janúar 2019.
ÍTG mun síðan velja milli þeirra sem tilnefndir eru og styðjast við niðurstöðu vefkosningarinnar við það val.

Upplýsingar um íþróttamennina sem eru tilnefndir og afrek þeirra 

Vefkosning - íþróttamenn Garðabæjar 2018

Íþróttahátíð Garðabæjar 6. janúar 2019.

Kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar verður lýst við hátíðlega athöfn í Ásgarði sunnudaginn 6. janúar kl. 13:00. Þar verða einnig afhentar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á íþróttasviðinu, þátttöku með landsliðum og árangur á erlendum vettvangi. Þá verður einnig veitt viðurkenning fyrir æskulýðsstörf og þjálfari ársins valinn.

Allir eru velkomnir á hátíðina.

Meðfylgjandi mynd með frétt er af íþróttamönnum Garðabæjar 2017.