23. apr. 2021

Jazzhátíð Garðabæjar í fullum gangi

Fimmtánda Jazzhátíð Garðabæjar hófst með beinu streymi frá Tónlistarskóla Garðabæjar að kvöldi sumardagsins fyrsta en fram kom Sálgæslan með Sigurð Flosason, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í síðustu viku, í fararbroddi.

  • Andrea Gylfa og Sálgæslan
    Andrea Gylfa og Sálgæslan.

Fimmtánda Jazzhátíð Garðabæjar hófst með beinu streymi frá Tónlistarskóla Garðabæjar að kvöldi sumardagsins fyrsta en fram kom Sálgæslan með Sigurð Flosason, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin í síðustu viku, í fararbroddi. Enn er hægt að njóta tónleikanna  á fésbókarsíðu bæjarins. 

Föstudagskvöldið 23. apríl kl. 20 leikur Kvintett Jóels Pálssonar lög af plötunni Horn sem kom út fyrir 10 árum en Jóel var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs fyrir verk sín á plötunni en tónleikarnir verða einungis í beinu streymi á fésbók Garðabæjar.

Á laugardeginum, 24. apríl fara fram tvennir tónleikar, aðrir kl. 15 en hinir kl. 20 og þar með lýkur Jazzhátíð Garðabæjar 2021. Á tónleikunum sem verður streymt kl. 15 verður leikinn nútímalegur jazz sem er undir áhrifum frá austrænni heimstónlist en það eru Sigmar Þór Matthíasson kontrabassaleikari og Haukur Gröndal klarinettuleikari, Ásgeir Ásgeirsson sem leikur á oud, Ingi Bjarni Skúlason á píanó auk Matthíasar Hemstock trommuleikara sem koma fram.

Lokatónleikarnir kl. 20 þann 24. apríl eru með sveitinni ADHD en það eru bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir sem leika ásamt Tómasi Jónssyni á Hammond orgel og Magnúsi Tryggvasyni Eliassen á trommur.

Óhætt er að búast við glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem fólk getur notið í rólegheitum heima en hátíðin féll niður í fyrra. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason. Allir tónleikarnir verða aðgengilegir á netinu til og með sunnudagskvöldsins 2. maí.