3. jan. 2019

Jólatré hirt 7.-8. janúar

Eins og undanfarin ár sér Hjálparsveit Skáta í Garðabæ um að hirða jólatré í öllum hverfum Garðabæjar.

  • Jólatré

Eins og undanfarin ár sér Hjálparsveit Skáta í Garðabæ um að hirða jólatré í öllum hverfum Garðabæjar.  Félagar úr hjálparsveitinni verða á ferðinni um bæinn mánudaginn 7. janúar og þriðjudaginn 8. janúar.

Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið.

Einnig geta íbúar losað sig við jólatré á endurvinnslustöðvum Sorpu bs.