3. jan. 2020

Jólatré hirt 11.-12. janúar

ATH breyting á dagsetningum vegna veðurspár.  Hjálparsveit skáta í Garðabæ  verður á ferðinni í öllum hverfum Garðabæjar helgina 11.-12. janúar nk. og hirðir jólatré.

ATHUGIÐ - BREYTTAR DAGSETNINGAR Á HIRÐINGU JÓLATRJÁA - 11.-12. JANÚAR

Uppfært mánudaginn 6. janúar:
Vegna veðurspár næstu daga þar sem spáð er miklu hvassviðri verður hirðingu jólatrjáa í Garðabæ frestað fram til næstu helgi eða 11.-12. janúar nk.  Íbúar sem ætla að nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um að bíða með að setja út jólatrén þar til um helgina og setja þau þá út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið. 

Eins og undanfarin ár verða jólatré hirt í Garðabæ. Það er Hjálparsveit skáta í Garðabæ sem sér um að hirða jólatrén.

Einnig geta íbúar losað sig við jólatré á endurvinnslustöðvum Sorpu bs.