9. mar. 2020

Kári vindflokkari úr notkun - plast í grenndargáma eða á endurvinnslustöðvar

Umhverfisstofnun hefur eftir samráð við sóttvarnarlækni lagt til að flokkun úrgangs með loftblæstri verði hætt tímabundið til að draga úr smithættu vegna Covid-19 veirunnar. 

  • Vindflokkarinn Kári
    Vindflokkarinn Kári sem flokkar plast frá öðrum úrgangi.

Umhverfisstofnun hefur eftir samráð við sóttvarnarlækni lagt til að flokkun úrgangs með loftblæstri verði hætt tímabundið til að draga úr smithættu vegna Covid-19 veirunnar. Það þýðir að ekki má nýta vindflokkara fyrir plast í pokum í móttöku- og flokkunarstöð SORPU á meðan þetta ástand varir. Um er að ræða búnað sem notaður er til að flokka plast í pokum frá heimilisúrgangi í Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.

Íbúar Garðabæjar sem skila plasti í pokum með heimilissorpi eru beðnir um að skila flokkuðu plasti á grenndargáma eða á endurvinnslustöðvar þar til tilkynnt verður um annað.

Hér má finna upplýsingar um grenndargáma og endurvinnslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu.