4. nóv. 2024

Kjörskrá Garðabæjar

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis mun liggja frammi í þjónustuveri Garðabæjar frá og með föstudeginum 8. nóvember 2024 til kjördags, 30. nóvember.

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara laugardaginn 30. nóvember 2024 mun liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg 7, frá og með föstudeginum 8. nóvember 2024 til kjördags.

Á kjörskrá Garðabæjar eru allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og voru með lögheimili hér á landi 29. október 2024.

Íslenskir ríkisborgarar, sem náð hafa 18 ára aldri og hafa átt lögheimili hér á landi, eiga kosningarrétt í sextán ár í því sveitarfélagi sem þeir fluttu lögheimili frá.

Íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri sem fluttu lögheimili sitt fyrir meira en 16 árum geta átt kosningarrétt hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2023.

Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt og eru því ekki á kjörskrá.

Á vefsíðu Þjóðskrár Íslands, skra.is, er hægt að nálgast nánari upplýsingar um hvort aðilar eru á kjörskrá eða ekki. Leiðbeiningar og upplýsingar um kosningarnar er einnig að finna á vefsíðunni kosning.is.

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands sem tekur þær þegar til meðferðar og gerir viðeigandi leiðréttingar ef við á. Slíkar leiðréttingar má gera fram á kjördag.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Sjá einnig: Alþingiskosningar 2024