11. jún. 2018

Kvennahlaup í 29. sinn

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og níunda sinn laugardaginn 2. júní. 

  • Frá Kvennahlaupinu í Garðabæ2018
    Frá Kvennahlaupinu í Garðabæ 2018.Ljósmynd: Garðapósturinn
  • Frá Kvennahlaupinu í Garðabæ 2018.
    Frá Kvennahlaupinu í Garðabæ 2018. jósmynd: Garðapósturinn.

Kvennahlaup_2018_3Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og níunda sinn í dag laugardaginn 2. júní. Fyrsta Kvennahlaupið var haldið 30. júní árið 1990 í Garðabæ. Eitt af því semerir kvennahlaupið sérstakt, er að það er ekki einn viðburður á einum stað heldur er hlaupið á meira en 80 stöðum um allt land sem og erðlendis.Fjölmennasta hlaupið er þó að jafnaði í Garðabæ.


Góð þátttaka var í hlaupinu í ár en, skv. frétt á vef Sjóvá , má gera ráð fyrir að um 10.000 konur hafi tekið þátt á yfir 80 stöðum um allt land og víða erlendis. Að vanda var boðið upp á mismunandi vegalengdir eða allt frá 900 m upp í 10 km. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum konum sem körlum, ungum sem öldnum. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Allir taka þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að hver komi í mark á sínum hraða. Þó svo að hlaupið hafi í upphafi verið til hvetja konur til hreyfingar eins og nafn þess gefur til kynna þá hafa karlmenn alltaf verið velkomnir í hlaupið. Það var því gaman að sjá hversu margir strákar tóku þátt í hlaupinu í ár. 

Frá Kvennahlaupinu í Garðabæ 2018.

Kvennahlaup_2018_4

Kvennahlaup_2018_5