Kynningardagur í Jónshúsi
Jónshús og Félag eldri borgara í Garðabæ blása til kynningardags þar sem fram fer kynning á hreyfidagskrá haustsins, námskeiðum í Smiðju og dagskrá í Jónshúsi.
Leiðbeinendur námskeiða verða á staðnum og svara spurningum og taka við skráningum.
Að venju verða kaffiveitingar til sölu og hvetjum við öll til að mæta í Jónshús og eiga notalega stund.