Lífshlaupið - ert þú búin/n að skrá þig til leiks?
Garðbæingar eru hvattir til að taka þátt í Lífshlaupinu sem er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
-
Lífshlaupið 2022
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:
- vinnustaðakeppni frá 6. febrúar – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
- framhaldsskólakeppni frá 6. febrúar – 19. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
- grunnskólakeppni frá 6. febrúar – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
- einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið
Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn s.s. 10 til 15 mín í senn.
Garðbæingar eru hvattir til að taka þátt í Lífshlaupinu en margar stofnanir í Garðabæ hafa nú þegar ákveðið að taka þátt.
Allar upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu eru á vefnum, www.lifshlaupid.is og á fésbókinni.